Meðgöngusund er sundleikfimi fyrir barnshafandi konur. Áhersla er lögð á stöðugleikaþjálfun fyrir mjóbak og mjaðmagrind. Einnig eru gerðar liðkandi og styrkjandi æfingar fyrir allan líkamann. Einungis sjúkraþjálfarar sjá um tímana í Meðgöngusundi og eru þeir útskrifaðir úr læknadeild Háskóla Íslands. Auk þess eru þeir með
réttindi í skyndihjálp, björgun í vatni og sundlaugarvörslu.
Meðgöngusundið byrjaði árið 2001 og er fyrsta sundleikfimin fyrir barnshafandi konur á Íslandi. Góð reynsla er því komin á Meðgöngusundið og hefur það reynst sérstaklega vel til að minnka verki frá stoðkerfinu, auk þess sem það er bjúgminnkandi. Flestar konur koma vegna meðmæla frá ljósmóður, lækni eða
sjúkraþjálfara.
Nokkur ummæli ánægðra viðskiptavina:
*** "Einnig vil ég þakka ykkur kærlega fyrir frábæra leikfimi og fræðslu, hvílíkur munur að geta haldið heilsu út meðgönguna. Ég gekk síðast með fyrir 9 árum og gat varla hreyft mig vegna verkja í stoðkerfinu frá miðri meðgöngu. Núna byrjaði ég í sundinu þegar ég fór að finna til og náði með ykkar hjálp að stoppa verkina! Þið eruð bara frábærar, þúsund þakkir :)"
*** "Vildi þakka kærlega fyrir mig. Ekkert smá ánægð með líkamlegt ástand mitt eftir sundið. Þorði ekki að vona að þetta myndi hafa svona góð áhrif á grindina og bara allt. Mæli með sundinu við allar óléttar sem ég þekki!!"
*** "Ég verð að láta þig vita að ég er gríðarlega ánægð með reynsluna
úr meðgöngusundinu og mun mæla með því við allar vinkonur mínar. Mér
fannst sjúkraþjálfararnir allar frábærar. Faglegar fram í fingurgóma
ásamt því að fræða okkur um margt gagnlegt og gott varðandi meðgönguna."
Hólmfríður Berglind Þorsteinsdóttir & Sandra Dögg Árnadóttir, sjúkraþjálfarar