Hólmfríður Berglind Þorsteinsdóttir
Lauk B.Sc. í sjúkraþjálfun frá læknadeild Háskóla Íslands 1999. Stundaði verknám með vinnu frá janúar 2003-júní 2004 hjá Dr. Eyþóri Kristjánssyni. Lauk Masters námi (M.T.) frá The University of Queensland í Ástralíu árið 2006. Hólmfríður hefur starfað sem sjúkraþjálfari á dagvist MS félagsins, á heimili fyrir aldraða og fatlaða í Kaupmannahöfn, í sjúkraþjálfuninni í Mjódd, Hreyfigreiningu og í ATLAS endurhæfingu. Núna starfar hún bæði á Hrafnistu í Reykjavík (síðan 2007) og Sjúkraþjálfuninni Sporthúsinu í Kópavogi. Hún hefur kennt vatnsleikfimi, þolfimi og háls- og bakleikfimi. Hólmfríður kenndi við sjúkraþjálfunarskor læknadeildar H.Í. með hléum á árunum 1997-2009, bæði verknám og bóknám.
Sandra Dögg Árnadóttir
Lauk B.Sc. í sjúkraþjálfun frá læknadeild Háskóla Íslands 2004. Sandra hefur starfað sem sjúkraþjálfari í
Meðgöngusundi frá febrúar 2005. Starfaði stundaði verknám með vinnu árið 2004 hjá Dr. Eyþóri Kristjánssyni. Er með réttindi í nálastungum og hefur starfað einna helst með bak- og mjaðmagrindarvandamál. Er auk þess ungbarnasundkennari, fimleikaþjálfari, alþjóðlegur fimleikadómari og hefur sótt námskeið í Pilates þjálfun. Stundar Mastersnám í sjúkraþjálfun við Læknadeild Háskóla Íslands. Hún starfar ásamt Meðgöngusundinu sem kennari í World Class. Var sjálf þátttakandi í sundinu á annarri og þriðju meðgöngu sinni. Er sem stendur í fæðingarorlofi.
Erla Ólafsdóttir
Lauk B.Sc. í sjúkraþjálfun frá læknadeild Háskóla Íslands árið 2001. Erla starfaði frá 2001-2008 í BATA-sjúkraþjálfun, mikið með mjaðmagrindarvandamál. Hún hefur einnig talsverða reynslu af sjúkraþjálfun íþróttafólks. Var klíniskur kennari við Háskóla Íslands frá 2003-2008. Erla starfaði á Reykjalundi frá 2008-9, en starfar nú í Sjúkraþjálfuninni Styrk. Hún hefur kennt meðgöngusund frá árinu 2001.
Sólrún Sverrisdóttir
Bsc próf frá læknadeild Háskóla Íslands vorið 2000. Námskeið í hjólastólafærni hjá Rekryteringsgruppen í Svíþjóð sumarið 2002. Nám í nálarstungum hjá Magnúsi Ólasyni lækni á Reykjalundi, viðurkennt af landlæknisembættinu vorið 2004. Starfaði sem sjúkraþjálfari á LSH – Grensási 2000-2003 og þar af í 6 mánuði á LSH – Fossvogi. Hefur starfað í Gáska sjúkraþjálfun, Bolholti frá hausti 2003. Starfaði sem þolfimileiðbeinandi frá 2000 til 2005, fyrst í Planet-Pulse og svo í Hreyfingu. Er í faghópi um kvennaheilsu hjá Félagi Íslenskra sjúkraþjálfara. Byrjaði að kenna í meðgöngusundi sumarið 2010.
Matja Dise Steen
Matja er fædd og uppalin í Noregi en hefur búið á Íslandi sl. 10 ár. Lauk B.Sc. sjúkraþjálfun frá Læknadeild Háskóla Íslands árið 2003. Hefur starfað í Sjúkraþjálfuninni Styrk síðan. Hefur einnig unnið að sjálfstæðu verkefn sem barheitið Hreyfing fyrir alla og vinnur í Fagnefnd Félags íslenskra sjúkraþjálfara. Hefur réttindi sem ungbarnasundkennari og starfar jafnframt við það. Byrjaði að kenna meðgöngusund sumarið 2007.
Sigrún Konráðsdóttir
Lauk B.Sc. í
sjúkraþjálfun frá læknadeild Háskóla Íslands 2004. Lauk skriflegum hluta samræmds
sjúkraþjálfaraprófs til starfsréttinda í Kanada 2008.
Sigrún hefur starfað sem sjúkraþjálfari í Hreyfigreiningu, Atlas Endurhæfingu
og nú hjá Sjúkraþjálfuninni Sporthúsinu. Hún hefur einnig kennt bakleikfimi hjá
Breiðu bökunum, bæði hóptíma í sal og í vatni, með hléum frá árinu 2003. Sigrún
var þátttakandi í meðgöngusundi á öllum þremur meðgöngum sínum. Hún hefur setið
mörg námskeið á vegum FÍSÞ, t.d. er snúa að greiningu og meðhöndlun mjaðmagrindar,
hryggsúlu, háls- og axlargrindar. Einnig nálastungunámskeið og notkun sónars í
sjúkraþjálfun. Sigrún hefur setið í fræðslunefnd Félags Íslenskra sjúkraþjálfar
síðan vorið 2010.
Ásdís Árnadóttir
Lauk B.Sc prófi frá Læknadeild Háskóli Íslands árið 2011. Lauk áður B.Sc prófi í sálfræði frá Háskóla Íslands árið 2004. Starfaði á MT-stofunni sumarið 2011 en starfar nú á sjúkraþjálfuninni Afli. Hún hefur starfað við heilsurækt síðan 2004 og kennt margskonar opna tíma sem og lokuð námskeið. Starfar nú hjá worldclass og kennir þar ýmsa opna tíma s.s. kvið og bak, spinning , styrktartíma og fleira. Lauk bóklegum hluta ungbarnasundkennara námskeiðs veturinn 2011. Byrjaði að kenna meðgöngusund sumarið 2011.