Velkomin í Meðgöngusund

Öryggisatriði

Sjúkraþjálfarar sem kenna Meðgöngusundið hafa farið á námskeið í skyndihjálp og björgun í vatni hjá Rauða Krossinum og eru með sundlaugarvarðarpróf. Í klefum eru konurnar á eigin ábyrgð. Ekki er leyfilegt að fara út í laugina eða pottana nema að sjúkraþjálfarinn sé á staðnum. Neyðarrofar (appelsínugular snúrur) eru staðsettir við pottana og í búningsklefum. Við hvetjum ykkur til þess að taka með vatnasbrúsa til að hafa á bakkanum.

Það er óhætt að stunda vatnsleikfimi fram á síðasta dag meðgöngu nema í eftirfarandi tilvikum:
  •     Legvatnið er byrjað að leka. Ljósmæður geta athugað það með einföldu prófi.
  •     Slímtappinn er farinn. Lituð útferð getur komið allt að 10 dögum fyrir fæðingu.
  •     Blæðingar á meðgöngu.
  •     Læknir eða ljósmóðir ráðleggur annað.

Hrafnista í Reykjavík


Sundlaugin er staðsett við Norðurbrún 1, Laugarási, 104 Reykjavík. Við göngum bakdyramegin inn í sundlagina og förum því á bílastæðið við Brúnarveg 9. Ef komið er frá Sæbraut er farið upp hjá Laugarás, til vinstri upp Kambsveg, til hægri upp Dragaveg, til hægri á Austurbrún og svo beygt til hægri hjá rauða strætóskýlinu inn á Brúnarveg. Ef komið er frá Sundlaugarvegi (framhjá Laugardalnum) er farið upp Sundlaugarveg, framhjá bílastæði Hrafnistu, svo til vinstri inn Brúanrveg hjá rauða strætóskýlinu. Keyrið eins innarlega á bílastæðið og þið getið. Gangið svo meðfram vegg bleika hússins inn í horn og þar eru merki á gluggum sem benda á Meðgöngusund. Í sundlaug Hrafnistu er mikil áhersla lögð á hreinlæti. Því viljum við hvetja ykkur sérstaklega til að ganga vel um búningsklefana og munið að það er ekki leyfilegt að fara inn á skónum. Reynum að hafa búningsklefana jafn snyrtilega þegar við förum og þegar við komum.


Boðaþing í Kópavogi

Sundlaugin í Boðaþingi er í þingahverfinu í Kópavogi, sem er stutt frá íþróttahúsin Kórnum í kórahverfinu í Kópavogi. Frá hringtorgina á gatnamótum Vatnsendavegar og Þingmannaleiðar má fylgja skiltum sem á standa “das Hrafnista” alveg að sundlauginni í Boðaþingi. Þegar komið er inn á bílastæðið við Boðaþing er keyrt nánast út í enda, en þar má sjá merkta 2 innganga: “das Hrafnista” og “þjónustumiðstöðin Boðaþingi”. Hægt er að nota hvorn innganginn sem er. Sundlaugin er í kjallaranum eins og merkingar sýna á staðnum.


Fræðsla á heimasíðunni

Á heimasíðunni okkar er ýmis fræðsla sem tengist meðgöngunni sem skemmtilegt er að skoða. Einnig er listi yfir þá sjúkraþjálfara sem skráðir eru í faghóp sjúkraþjálfara um kvennaheilsu og hafa mikla reynslu í meðhöndlun barnshafandi kvenna ef ykkur vantar að fara til sjúkraþjálfara í skoðun eða meðferð.



 

 

Facebook

Meðgöngusund er með Facebook síðu þar sem hægt er að spjalla og setja inn myndir af krílunum ykkar og selja notaðan meðgöngufatnað!

Hafa samband

Tölvupósstur: medgongusund@medgongusund.is og sími: 859-2440.