Mömmutímar í Laugum

World Class í Laugum býður upp á námskeið fyrir nýbakaðar mæður. Námskeiðið er í 6 vikur í senn og eru tímarnir á þriðjudögum og fimmtudögum frá klukkan 10:30-11:30. Námskeiðið er ætlað mæðrum með börn frá 6 vikna aldri og eins lengi og móðirin kærir sig um. Seinna er hægt að nýta sér barnagæslu World Class, Sprotaland, þegar þess er óskað, en þar er ekkert aldurstakmark.
Markmið með námskeiðinu er að aðstoða móðurina að koma líkamanum í eðli
legt horf eftir meðgöngu og fæðingu. Áhersla er lögð á kviðæfingar, grindarbotnsæfingar, almenna styrktarþjálfun, stöðuleikaþjálfun fyrir bak og mjaðmagrind, rétta líkamsstöðu, liðkandi æfingar og fræðslu.
Kennari er Ásdís Árnadóttir sem starfar í World Class og í Meðgöngusundi.

Skráning er í World Class í Laugum, síma 533-0000, eða á heimasíðu World Class:
www.worldclass.is