Hvernig á að rata
Sundlaugin er staðsett við Norðurbrún 1, Laugarási, 104 Reykjavík. Við göngum bakdyramegin inn í sundlagina og förum því á bílastæðið við Brúnarveg 9.
Ef komið er frá Sæbraut er farið upp hjá Laugarás, til vinstri upp
Kambsveg, til hægri upp Dragaveg, til hægri á Austurbrún og svo beygt
til hægri hjá rauða strætóskýlinu inn á Brúnarveg. Ef komið er frá
Sundlaugarvegi (framhjá Laugardalnum) er farið upp Sundlaugarveg,
framhjá bílastæði Hrafnistu, svo til vinstri inn Brúanrveg hjá rauða
strætóskýlinu. Keyrið eins innarlega á bílastæðið og þið getið. Gangið
svo meðfram vegg bleika hússins inn í horn og þar eru merki á gluggum
sem benda á Meðgöngusund.
Kort má sjá á: http://ja.is/kort/#q=index_id%3A226998&x=360472&y=408166&z=9
Búningsklefar
Í sundlaug Hrafnistu er mikil áhersla lögð á hreinlæti. Starfsfólk sundlaugarinnar þrífur hana rétt áður en við komum, þannig að hreinni laug og klefa getum við varla fengið. Því viljum við hvetja ykkur sérstaklega til að ganga vel um búningsklefana og munið að það er ekki leyfilegt að fara inn á skónum. Reynum að hafa búningsklefana jafn snyrtilega þegar við förum og þegar við komum.
Þær sem mæta kl. 13:05 nota kvennaklefan en hópar 12:20 og 13:50 nota karlaklefann. Þær sem byrja kl. 13:50 þurfa í seinasta lagi að vera komnar úr búningsklefanum kl. 15:00.
Sundlaugin
Sundlaugin á Hrafnistu er dýpst 1.6 metrar og er um 32° C þegar við erum í henni.
Einnig eru tveir heitir pottar og við notum þann kaldari sem er 37,5° C. Heitir pottar eru góðir fyrir vöðva og liði en þær sem eru með bjúg og / eða æðahnúta ættu að forðast að vera mikið í heitum pottum og ef til vill sprauta köldu vatni á fótleggi í sturtu til þess að fá æðaveggi til að dragast saman.