Hvernig á að rata
Sundlaugin er staðsett við Boðaþing 5-7, 203 Kópavogi. Hjúkrunarheimilið í Boðaþingi var opnað í mars 2011.
Merkirngar eru sem benda á Meðgöngusund.
Kort má sjá á: http://ja.is/kort/#q=index_id:1490945&x=362602&y=400608&z=9&services=8
Búningsklefar
Í Hrafnistu í Boðaþingi er mikil áhersla lögð á hreinlæti. Starfsfólk
sundlaugarinnar þrífur hana rétt áður en við komum, þannig að hreinni
laug og klefa getum við varla fengið. Því viljum við hvetja ykkur
sérstaklega til að ganga vel um búningsklefana og munið að það er ekki
leyfilegt að fara inn á skónum. Reynum að hafa búningsklefana jafn
snyrtilega þegar við förum og þegar við komum.
Sundlaugin
Sundlaugin í Boðaþingi er dýpst 1.6 metrar og er um 33° C þegar við erum í henni.
Einnig heitur pottur sem er 37,5° C.
Heitir pottar eru góðir fyrir vöðva og liði en þær sem eru með bjúg og /
eða æðahnúta ættu að forðast að vera mikið í heitum pottum og ef til
vill sprauta köldu vatni á fótleggi í sturtu til þess að fá æðaveggi til
að dragast saman.